top of page
  • Black Facebook Icon
  • Black Instagram Icon

Draumur eða veruleiki

Átta vikur síðan ég var endanlega flutt í húsið mitt. Eftir mánuð sem fór í flutninga og ferli sem hófst í byrjun mars þar sem ég fór í ransóknarleiðangur til Steiermark til að kynnast svæðinu og skoða nokkur hús sem ég vissi að voru til sölu. Eftir nokkra daga og umhverfisathuganir var eitt hús sem ég vildi skoða nánar.

Húsið er við aðalgötuna í Aflenz, litlum bæ sem hefur verið heilsudvalarstaður í yfir 100 ár og er hér rekið heilsusetur. 1920 fær bærinn staðfestingu sem Luftkurort þ.e. Viðurkenningu á að hér sé andrúmsloftið heilnæmt og hreint.

Húsið var byggt um 1500 og er fimmta elsta húsið í bænum. Í húsinu var rekin vefstofa og síðar klæðskeraverkstæði og var í eigu sömu fjölskyldu í nokkra ættliði.


Og kanski var það einmitt sú saga sem talaði til mín, því ég hafði gantast með að ég væri að leita mér af þaki yfir höfuðið með plássi fyrir vefstól og litlum garði fyrir gulrætur. Og áhugi minn á textíl hefur verið svo lengi sem ég man það má segja að þetta smellur einhvernvegin allt saman.



Mig hefur alltaf dreymt um gamalt hús eða hús með sál.  Fyrir einu ári var ég á leið til Íslands keyrði um Vestifirðina sem skartaði sýnu fegursta litagleðin ótrúleg og ég sá fyrir mér að hér vildi ég vera en því miður sá ég fljótlega að það var ekki raunhæft fyrir mig og minn fjárhag og lífsgæði mín og möguleika til að lifa af yrði ekki auðvelt.

Svo ég fór að skoða hvað væri í boði hér, ég átti nú ekki von á 500 ára gamalt hús í hinum enda Austurríkis yrði fyrir valinu og að ég myndi byrja upp á nýtt í framandi bæ. En húsið tekur vel á móti mér og ég finn bara hlýhug og vinarlegt viðmót og get ekki sagt annað en að það sé tekið vel á móti framandi íslendingi.

Það eru mörg verkefni framundan en í grunnin er húsið í góðu standi með hitaveitu og allt sem þarf til að líða vel.

Ég hef notið þess að koma mér fyrir og kynnast húsinu og umhverfinu, leyfi sköpunargleðinni að njóta sýn með pensilin á lofti, smá framkvæmdir og saumavélin tifar reglulega, stærri framkvæmdir geymi ég til næsta árs.



 
 
 

Comments


bottom of page